Tuesday, 20 October 2009

Múffur fyrir alla, konur og karla,krakka með hár og kalla með skalla














Ég veit ekki hve oft ég hef bakað múffur úr þessarri uppskrift. Ég rakst á hana í Gestgjafanum og hún klikkar hreinlega ekki. Grunnuppskriftin er fljótleg, einföld og þarf ekki meira en hráefni,skál,sleif og handafl. Jú og að sjálfsögðu múffuform og ofn.

Múffur grunnuppskrift

280 gr hveiti
30 gr sykur (má sleppa)
2 1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
Þessu er blandað saman í skál.

1 egg
2 1/2 dl mjólk
60 gr brætt smjör
hrærið þessu létt saman í annarri skál

Hellið vökvanum út í hveitiblönduna og hrærið varlega, í mesta lagi 20 handtök. Deigið á að vera kekkjótt.
Smyrjið múffumót eða notið pappírsform og bakið í 20 mín við 200 gráður. Ég mæli með því að nota múffumót fyrir 12 múffur og pensla létt með olíu, þannig steikjast múffurnar vel undir. Deigið er akkúrat fyrir 12 múffur. Grunndeigið er best borðað samdægurs en ef það er meiri matur í þeim þá eru þær góðar næstu 2 daga líka. Ef ekkert er sett í þær þá eru þær tilvaldar með smjöri, osti og sultu eða hvaða áleggi sem er.


Hægt er að setja allt mögulegt í deigið, á myndinni fyrir ofan eru múffurnar með hindberi og súkkulaðibitum. Þá set ég deigið í formin og sting svo einu hindberi í hverja múffuskál og ýti nokkrum grófsöxuðum súkkulaðibitum ofan í. Þessi útgáfa er best strax eftir bökun.




Þetta er pizzamúffa, sem alveg bráðnar í munninum á manni. Ég set 1-2 tsk af heitu pizzakryddi frá pottagöldrum, slatta af rifnum osti (allt eftir því hve mikið er til) en kannski c.50gr. Set svo kannski skinku, pepperoni eða grillaðar papriku smáttsaxaða út í. Ég set þetta í grunnuppskriftina þegar ég er kannski búin að hræra 15 sinnum í hana og hræri síðustu handtökin með þessu í. Skammta svo í formin og baka kannski 5 mínútum lengur því múffurnar verða stærri og matarmeiri.
Þessar eru hrikalega góðar í morgunmat eða brunch. Þær frystast vel og þú getur hitað þær snögglega í ofni og þær eru eins og nýbakaðar.


Verði ykkur að góðu!

1 comment:

  1. Mikið er ég fegin að uppskriftin að þessum dásamlegu múffum er komin á aðgengilegt prent :) Og svo er bara að sjá hvort mér takist að gera þær jafn góðar og þú gerir þær :)
    Til hamingju með þessa frábæru síðu Eydís mín . . . . ég er sannfærð um að það eru all margir fleiri en ég sem eru himinlifandi með þetta framtak hjá þér :)
    Sakna þín ljúfan mín, kossar og knús á þig og famelíuna :*
    Kveðja Þóra Björk

    ReplyDelete