Mikið er fiskur dásamlegt hráefni, það eru hreinlega óendanlegir möguleikar til að matreiða hann.
Þetta er skemmtilega fersk blanda af engifer,hvítlauk,chili,chili dufti,kóríander laufum og sítrónusafa.
Hægt er að nota þorskstykki eða lúðubita eða í raun hvaða fisk sem er sem er svolítið stífur.
4 msk olía
125 gr kókosflögur eða kókosmjöl
5 sm ferskur engifer,saxaður
1 stór laukur fínsaxaður
4 hvítlauksrif fínsöxuð
2 ferskir grænir chili, saxaðir
1 tsk chili duft
2 msk fínsaxaður ferskur kóríander
4 msk sítrónusafi
5-600 gr fiskstykki
salt
Hitið olíuna á pönnu og setjið lauk,hvítlauk,engifer,chili,chiliduftið og kókos og steikið á meðalhita þar til laukurinn mýkist. Bætið þá sítrónusafanum og kóríander út í og saltið ef þarf. Látið malla í 5-10 mínútur er þar til kókosinn er farinn að taka lit og mýkjast. Það þarf að standa við og hreyfa í reglulega þar sem það er ekki mikill vökvi.
Setjið smá olíu í eldfast mót og setjið smá hluta af kókosblöndunni neðst, fiskstykkin næst og svo alla blönduna ofan á fiskstykkin. Setjið í forhitaðan ofn á 160 gráður í 20-25 mínútur eða þar til fiskurinn er tilbúinn. Þetta er algert nammi. Borið fram með fersku brakandi salati.
Þetta var maturinn í kvöld.


No comments:
Post a Comment