Tuesday, 20 October 2009

Döðlu og tómat chutney




Fyrir þau okkar sem elska allt sætt þá er hér gróft og gott chutney. Ágætis tilbreyting frá algengara meðlæti eins og mango chutney eða lime pickle.

250 gr döðlur, steinhreinsaðar og skornar í litla bita
575 gr tómatar í dós
1 laukur, fínsaxaður
3.5sm biti af fersku engifer, saxað
1 tsk chili duft
1 tsk salt
6 msk edik

Settu allt heila klabbið í pott og hrærðu vel. Láttu suðuna koma upp og svo minnka hitann niður í 3-4, láttu malla í c.45 mín án loks. Hrærðu af og til í þar til það þykknar.
Ef þú vilt fá aðeins sterkara chutney þá bætir þú bara við chili dufti og salti eftir smekk. Döðlurnar gera þetta mjög sætt svo það er gott að vega upp á móti því með chili.

Þetta nægir fyrir 4-6
Undirbúningur 10 mínútur
Eldun 45 mínútur

No comments:

Post a Comment