Friday, 23 October 2009

Safaríkar og seiðandi plómur




Það er eitthvað við plómur. Þær eru bústnar, mjúkar og safaríkar og mér verður alltaf hugsað til endurreisnartímabilsins þegar ég borða þær. Það hangir uppi olíumálverk af plómum í stórfenglegum gylltum ramma í stofunni hjá mömmu. Málverkið kemur frá ömmu og afa og hefur alltaf verið í bakgrunninum eins lengi og ég man eftir mér. Lýsingin minnir á Rembrandt málverk, djúpir skuggar og plómurnar svo eðlilegar að mig langar að teygja mig inn málverkið og stela einni.

Ég keypti stóran pakka af plómum um daginn og hef ekki getað látið þær í friði.  Ef ég borða þær reglulega þá bæta þær meltingafærin, hjálpa við inntöku járns í líkamanum, hreinsa blóðið og það eru minnkandi líkur á hjartasjúkdómum, ristilkrabbameini,astma,beinkrabba og gigt. Þegar þú bætir því við að það er lítil fita og fáar kalóríur í hverri og mikið C vítamín í þeim þá væri það hreinlega glæpsamlegt að borða þær ekki.




Svo ég komi mér nú að máli dagsins þá sit ég veik heima með veikt barn og þá er bara eitt sem ég alltaf geri í veikindum... ég baka.
Ég hef það samt einfalt í þetta sinn og held mig við þemað... plómur.


Plómu svindl

1-2 plötur frosið smjördeig
8-15 þroskaðar plómur, fer eftir stærð
2 msk fljótandi hunang
1-2 msk möndlulíkjör eða annar eftirlætislíkjör

Skerðu steininn úr plómunum og sneiddu þær. Hitaðu ofninn í 200 gráður.




Flettu smjördeigið út og brettu upp á deigið við endana og mótaðu kant. Gott að nota smávegis vatn til að festa kantinn. Settu deigið á bökunarklædda plötu.
Leggðu svo plómusneiðarnar ofan á deigið, passaðu að leggja þær ekki of þétt ofan á hverja aðra, þá er hætta á að deigið verði of blautt.

Blandaðu svo hunangi og likjörnum saman og helltu í mjórri bunu yfir plómurnar. Það er gott að geyma örlítið af því og hella svo yfir þegar bakan kemur úr ofninum.
Settu í miðjan ofn við 200 gráður í c.25 mínútur eða þar til smjördeigið er gyllt á lit.  Þær eru góðar heitar og kaldar og alveg hreinlega guðdómlegar með góðum vanilluís.
 







This is just to say
by William Carlos Williams


I have eaten
the plums
that were in
the icebox

and wich
you were probably
saving
for breakfast


Forgive me
they were delicious
so sweet
and so cold



No comments:

Post a Comment