Monday, 19 October 2009

Spúsi vildi halda enskt teboð...














Það var síðsumars og spúsi vildi halda enskt teboð.
Ég greip hugmyndina á lofti og ákvað að baka litlar kökur og smyrja gúrkusamlokur.

Kökurnar urðu algerar krúttkökur og komust léttilega fyrir í lófa manns.

Þetta er ákaflega auðvelt í framkvæmd og einstaklega ljúffengt í munni. Hver biti er svo lítill og syndsamlegur.


Notaðu glas til að stinga út hringi úr svampbotnum. Þeyttu rjóma og settu smá möndlulíkjör eða möndludropa í hann. Sneiddu banana í sneiðar. Leggðu bananasneiðar á neðri svamphringinn, rjómann ofan á það og að lokum er seinni svamphringurinn settur ofan á. Ég bræddi súkkulaði og sullaði ofan á og skreytti með rifsberjum úr garðinum.

Hér er uppskrift að einföldum en góðum svampbotnum- 2 stk meðalstórir
4 egg
200 gr sykur
60 gr kartöflumjöl
60 gr hveiti
1 tsk lyftiduft

Settu mjöl,hveiti og lyftiduft í skál. Þeyttu saman egg og sykur í hrærivél þangað til það verður létt og ljóst. Bættu þá þurrefnunum út í smátt og smátt. Smyrðu lausbotna form og helltu deiginu í þau.
Bakað í miðjum ofni við 175 gráður í 15-20 mínútur. Mismunandi eftir ofnum.

Það er hægt að stinga út 4-6 litla hringi úr hverjum botni, fer eftir því hve stórt glasið er að sjálfsögðu.

Bon apetit!

No comments:

Post a Comment