Saturday, 24 October 2009

Avókadó með tómötum og myntu


Fallegur morgunmatur eða forréttur.
1 avókadó skorið í tvennt og steinn fjarlægður
1 tómatur,fræhreinsaður og skorinn í bita
smá rauðlaukur fínt saxaður
nokkur myntulauf

Ég blanda saman 1 tsk af basil ólífuolíu, nokkrum dropum af balsamik ediki,1/2 tsk sítrónusafa,1/2 tsk hunangi eða maple sírópi. Helli helmingnum yfir avókadóið. Set svo tómatbitana og laukinn saman og ofan í holurnar og myntulauf yfir. Helli svo afgangnum af olíuleginum yfir.

Ég fékk mér þetta í morgunmat með appelsínusafa, sem sagt alger c-vítamínsbomba í morgunsárið.

Hyvää ruokahalua!

No comments:

Post a Comment