2 1/2 bolli hveiti
2 bollar haframjöl
2 bollar sykur
250 gr smjörlíki/smjör mjúkt
2 egg
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1 bolli saxaðar rúsínur
200 gr súkkulaði saxað
Þurrefnunum blandað saman í skál, eggjum,smjöri er blandað við. Mér finnst best að nota fingurna í þessa vinnu. Kreista og klípa deigið þannig að smjörið og eggið bindi restina vel saman. Hnoðað og svo mótað í nokkrar aflangar jafnar lengjur og sett í kæli. Ég geri deigið oft að kvöldi og baka svo daginn eftir. Skera lengjurnar í jafna bita, móta bitana með fingrunum og setja á bökunarklædda ofnplötu. Þær stækka töluvert í ofninum svo það borgar sig að hafa nægt rými á milli þeirra.
Best er að baka þær í miðjum ofni við 175 gráður í 10 mínútur.
Þessar kökur eru betri ef þú bakar þær ekki of lengi, hafa þær ljósar þegar þú tekur þær út, þá eru þær stökkar að utan en "chewy" að innan. Það verður bara að prufa sig með fyrstu plötuna því þetta fer allt eftir því hve stórar kökurnar eru. Í þetta sinn gerði ég þær reyndar risastórar eins og bakarískökur svo þær voru 25 mínútur í ofninum og voru um 4 sm að þykkt þegar ég setti þær inn.
Verði ykkur að góðu!


No comments:
Post a Comment