Friday, 23 October 2009

Beikonvafin grísasnitzel með döðlu gráðosta fyllingu

Þetta er alveg skotheld uppskrift, það er ekki hægt að klúðra þessu. Grísasnitzel eru hræódýr þessa dagana en hægt er að búa til svo girnilega rétti úr þeim. Titillinn sagði í rauninni allt sem þurfti.  Það þarf grísasnitzel, beikon,döðlur og gráðost og grófkorna sinnep.

Það þarf bara að smyrja smá gráðosti á snitzelið, steinhreinsa döðlurnar og skera niður og raða ofan á ostinn. Rúlla snitzelinu upp og smyrja það með sinnepinu, ekkert vera nískur á það. Taka svo 2 beikonsneiðar og vefja utan um snitzelið.
 





Et voilá!  Þessi sætu grísarúllur bíða þess að komast í ofninn. Það nægir þeim 20 mínútur við 205 gráðu hita. Í þetta sinn bar ég rúlluna fram með grilluðu grænmeti og spínati.

Ég skar niður gulrætur, sætar kartöflur og papriku í grófa bita. Skar lauka í tvennt og dreifði með ásamt nokkrum hvítlauksrifjum. Bætti við nokkrum sveskjum og stórum bitum af epli. Dreifði basil ólífuolíu yfir og velti öllu saman og kryddaði með ítölsku kryddi. Setti í eldfast mót og álpappír yfir, bakaði í ofni við 200 gráður í 40 mínútur, tók álpappírinn af og lét það vera í 15 mínútur í viðbót. Tíminn er svolítið afstæður, fer eftir stærð grænmetisbitanna. En þetta fór mjög vel með grísarúllunum, eplin og sveskjurnar eiga alltaf vel við svínakjöt.
Þetta er algert partý fyrir bragðlaukana!
Guten appetit!



No comments:

Post a Comment