Við erum á 23 degi indverskra daga á Bjargartanganum. Indverskur matur eldaður frá grunni í kvöldmat alla þessa daga. Mmmmmm...Við fáum ekki nóg og því höldum við bara áfram. Enn er Ottó ekki farinn að svitna gulu svo við erum í góðum málum. Það eru svo margar góðar uppskriftir en ég hef ekki myndað neitt fyrr en núna. Þessi réttur er fínt meðlæti með mörgum réttum eða bara gott grunn karrí í aðalrétt. Þetta er bragðgóður karrý grænmetisréttur, ekki of sterkur.
Balti blandað grænmeti
Notið hvaða grænmeti sem bester í það sinnið. Saxið það í frekar smáa teninga svo það taki ekki oflangan tíma að sjóða. Þetta er mild blanda af engifer,chili,kóríander og turmeric. Auðvitað getið þið verið gjafmildari með chili duftið ef þið viljið aðeins meiri kraft.
2-3 msk olía
1 lítill laukur,saxaður
1-2 hvítlaukar pressaðir
2.5sm ferskt engifer, rifið
1 tsk chili duft ( ég set 2tsk)
2 tsk kóríander duft
1/2 tsk turmeric duft
500 g blandað grænmet (ég notaði núna gulrætur,sætar kartöflur og frystar grænar baunir, það er hægt að nota kartöflur,blómkál ,rófur...)
2-3 tómatar, húðlausir og niðurskornir eða 4 msk sítrónusafi
salt
1 lítill laukur,saxaður
1-2 hvítlaukar pressaðir
2.5sm ferskt engifer, rifið
1 tsk chili duft ( ég set 2tsk)
2 tsk kóríander duft
1/2 tsk turmeric duft
500 g blandað grænmet (ég notaði núna gulrætur,sætar kartöflur og frystar grænar baunir, það er hægt að nota kartöflur,blómkál ,rófur...)
2-3 tómatar, húðlausir og niðurskornir eða 4 msk sítrónusafi
salt
Hitið olíuna í stórri pönnu/wok eða þykkbotna potti og steikið laukinn á meðal hita í 5-10 mínútur eða þar til hann er farinn að brúnast eilítið. Bætið hvítlauk,engifer, chili,kóríander,turmerc og smá salti út í og steikið í 2-3 mínútur í viðbót. Bætið þá niðurskornu grænmetinu út í og steikið í 2-4 mínútur í viðbót.
Bætið annað hvort tómötunum eða sítrónusafanum út í .Hrærið vel og bætið örlitlu vatni út í.
Ég var með tómata úr dós og notaði allt úr dósinni og svo dass af sítrónusafa að auki.
Setjið lok yfir og látið malla í 10-12 mínútur eða þar til grænmetið er orðið meyrt, bætið vatni út í ef þarf svo grænmetið festist ekki við botninn. Tíminn fer eftir því hve stórt grænmetið er skorið.
Hægt er bera fram með naan eða chapatis
Ó boj ó boj...þarf að smella í einn svona fyrir hana Evu :)
ReplyDelete