Ég og Ottó fengum indverska matar fullnægingu þegar við brögðuðum þennan rétt. Hann er svo látlaus að sjá en “oh boj!” hann hreinlega strýkur bragðlaukana á dónalegan hátt. Myntulaufin eða kóríanderlaufin eru ekki bara skraut, þau setja punktinn yfir i-ið. Við djúpsteikjum aldrei neitt svo ég var hikandi að gera það en rétturinn verður ekki eins nema það sé gert. Djúpsteikingin gerir bollurnar nógu stökkar til að þola suðuna eftir á. Þær verða stökkar að utan en algert gúmmulaði að innan. Ég held ég hafi aldrei elskað nautahakk jafn mikið.
Ég mæli með hrísgrjónum, naan brauði, gott chutney með þessum rétt og hreina jógúrt fyrir þá sem þurfa að kæla munninn. Annars getum við borðað þetta eintómt. Snilldar uppskrift með hversdagslegu hráefni.
500gr nautahakk
2 stórir laukar,fínsaxaðir skipt í tvennt
6-7 hvítlauksrif, pressuð skipt í tvennt
2 tsk turmerik
2-3 tsk chili duft
2 tsk kóríander duft
1 1/2 tsk cumin duft
1 tsk engifer duft
2 tsk salt
kryddi blandað saman og skipt í tvennar skálar
1 egg,hrært
grænmetisolía til að djúpsteikja
125g smjör eða 2 msk grænmetisolía
200 ml vatn
myntu eða kóríander lauf til skreytingar og bragðauka 
Setjið allt hakkið, og takið nú eftir! -helminginn af lauknum,hvítlauknum og kryddi saman í skál.
Hrærið því vel saman, setjið eggið út í og svo kemur uppáhalds iðjan mín og það er að kreista hakkið og allt gumsið vel saman þar til það verður meðfærilegt og hægt að móta auðveldlega úr því kúlur. Það á ekki að þurfa að bæta neinu út í. Mótið 12 kjötkúlur úr deiginu.
Setjið næga olíu í pott svo hægt sé að djúpsteikja bollurnar. Steikið nokkrar bollur í einu í c.5 mín. Takið þær upp úr og látið olíuna leka af þeim á eldhúspappír og setjið svo til hliðar. Nú er komið að hinum helmingnum af lauknum og kryddunum!Hitið olíuna í stórri pönnu, setjið restina af lauknum og hvítlauknum og steikið ljúflega í 4-5 mínútur þar til hann er farinn að verða glær. Bætið þá kryddunum út í og steikið í 3 mínútur, hrærið stöðugt. Bætið steiktu kjötbollunum út í og passið að kryddblandan hylji þær allar að einhverju leyti. Bætið svo vatninu út í og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið malla við lágan hita í 30 mínútur. Stráið annað hvort ferskri myntu eða kóríanderlaufum yfir og berið fram. Ég lofa því að þeir sem vilja bragðmikinn og/eða indverskan mat verða ekki sviknir af þessum rétt.
Þetta nægir fjórum.
Undirbúningur 30 mínútur
Eldamennska 40 mínútur.
Verði ykkur svo sannarlega að góðu 
No comments:
Post a Comment