Ottó elskar ostakökur. Hann lætur allt annað bíða á veisluborðinu ef ostakaka er í boði. Hann fann þessa uppskriftá síðunni Cooking for engineers ,þar er allt skráð skref fyrir skref og engin uppskrift látin fara fyrr en hún hefur verið þrautreynd. Þetta er hreinræktuð ostakaka, hún er kremuð og mjúk og kennd við New York. Þetta er stór kaka svo ég mæli ekki með að þú bakir hana bara fyrir þig, ja ekki nema þú hafir lent í áfalli og þurfir nokkurra daga osta svallveislu til að jafna þig.
Botninn samanstendur af 110 gr graham kexi, 55 g af bræddu smjöri og 12 gr(1msk) af sykri. Merjið kexið í poka með hamri eða setjið í moulinex í nokkrar mínútur. Bræðið auka msk af smjöri til að smyrja botninn á 25 sm smelluformi.Blandið muldu kexinu við 55gr brædda smjörið og sykurinn svo það sé blautt og setjið í botninn . Þjappið mulningnum vel í botninn á forminu, það er hægt að nota sléttan botn á glasi eða skeið til að þjappa yfir svo það sléttist vel. Passið að ytri brún botnsins nái örlítið upp. Hitið ofninn í 160 gráður og bakið botninn í 12 mínútur. Látið formið kólna á grind og setjið smá brætt smjör (1/2 msk) meðfram ytri brún botnins.
Þá er komið að fyllingunni. Takið til 1.1 kg af rjómaosti, 1/8 tsk salt, 350 gr sykur,23 g hveiti,2 tsk sítrónusafa,1 tsk vanilludropa,120ml rjóma, 2 stórar eggjarauður (34gr), 6 stór heil egg.
Skerið rjómaostinn í bita og setjið í hrærivél, látið vélina vinna í hægum gír þar til osturinn mýkist, c.2-3 mínútur. Það gæti verið gott að setja helminginn fyrst og svo restina þar sem þetta er svo mikið. Þegar osturinn er orðinn mjúkur þá bætið þið við saltinu og 1/3 af sykrinum. Hrærið þar til sykurinn hefur samlagast vel og bætið öðrum þriðjung út í, notið sleikju til að renna meðfram skálinni að innan svo allt blandist vel saman. Setjið síðasta þriðjunginn út í og hveitinu í leiðinni. Hveitið kemur í veg yfir að yfirborð kökunnar bresti. Bætið svo sítrónusafanum og vanilludropunum út í. Hrærið. Notið sleikjuna til að losa meðfram innan í skálinni og bætið svo rjómanum út í. Osturinn ætti að vera mjög mjúkur núna. Bætið svo eggjarauðunum út í og blandið þar til það samlagast. Næst fara 3 heil egg og hrærið þar til þau eru alveg blönduð og að lokum síðustu 3 eggin.
Blandan ætti að vera fölgulleit á lit og þunn þegar hér er komið við sögu. Hellið blöndunni ofan á botninn í smelluforminu, lyftið forminu örlítið upp frá borðinu og skellið því svo á borðið, þetta ætti að koma í veg fyrir að loftbólur myndist inni í kökunni.
Setjið svo formið á bökunarklædda plötu og setjið í miðjan forhitaðan ofn við 260 gráður og bakið í 10 mínútur. Ekki opna ofninn! Lækkið hitann í 90 gráður og bakið áfram í 100 mínútur eða þar til hiti kökunnar er orðinn 65 gráður (notið kjöthitamæli).
Takið ostakökuna út úr ofninum og setjið formið á grind. Eftir c. 10 mínútur þá skulið þið nota borðhníf til að renna meðfram ytri brún kökunnar. Þetta hjálpar til þegar þið losið svo smelluformið að ekkert festist við formið. Setjið disk eða aðra bökunarplötu yfir formið, rakinn helst þá inni í forminu og hægir á kulnunarferlinu. Eftir 2-3 tíma þá er óhætt að setja plastfilmu yfir formið og setja í kælinn. Kakan þarf að sitja í kæli í alla veganna 5 tíma áður en hún er borin fram. Hún er ekki alveg tilbúin fyrr en þá. Takið kökuna úr kæli 30 mín áður en þið ætlið að borða og skerið sneiðar með beittum hníf, gott er að stinga hnífnum í volgt vatn á milli sneiða til að skurðurinn gangi snurðulaust.
Ég ber kökuna oft fram með hindberjasósu. Ég skelli frosnum hindberjum í blandarann og þegar þau eru orðin að mauki þá set ég flórsykur út í og blanda þar til góð sósa er til. Flórsykurinn er eftir smekk en mér finnst gott að sósan sé örlítið súr. Enjoy!
No comments:
Post a Comment