Ég hef aldrei búið til hnetusteik áður en hef hins vegar búið til alls kyns grænmetisbuff og bollur. Ég rakst á uppskrift í veislubók Nóatúns en aðlagaði hana örlítið. Ég fer ekki endilega út í búð til að kaupa akkúrat það sem er gefið upp í uppskriftum, reyni frekar að nýta það sem ég á til í skápunum.
300 gr hnetur
(ég notaði blöndu af kasjúhnetur,möndlum,pistasíum og jafnvel 10 gr af sesamfræjum)
1 stór laukur fínsaxaður
1 rauð paprika fínsöxuð
1 askja sveppir fínsaxaðir
3 hvítlauksrif saxaðir
180 gr rifinn ostur
(gefið upp cheddar en ég notaði bara pizzaost ;)
40 gr parmesan
það væri auðvitað best að nota ferskan en ég notaði bara krukkuost í þetta skiptið
80 gr byggmjöl
eða heilhveiti
1 egg slegið
salt og pipar eftir smekk
Steikið lauk og sveppi á pönnu ásamt hvítlauknum í nokkrar mínútur þar til laukurinn verður glær, ekki brúna hann. Kælið. Smyrjið eldfast form sem er 14x21 sm og klæðið það með bökunarpappír. Setjið hneturnar í matvinnsluvél, malið þær en passið að þær verði ekk alveg að mauki. Blandið saman sveppablöndunni,hnetunum,ostinum,parmesan,eggi og byggmjöli í skál og hrærið vel saman.Tómatsósa
1 laukur fínsaxaður
1-2 msk extra virgin ólífuolía
2 hvítlauksgeirar pressaðir
1 dós tómatar
1 msk tómatpúrra
1 tsk sykur
Steikið laukirnn og hvítlaukinn í olíunni í 3 mínútur eða þar til glær, bætið restinni út í og sjóðið í 5 mínútur.
Með steikinni bar ég fram ofnbökuð epli, ferskt salat og baunir. Bon apetit!


